Lögregla rannsakar enn innbrot í grísa- og alifuglabú í Mosfellsbæ og á Kjalarnesi. Innbrotin eru talin tengjast og fleiri en einn liggja undir grun.Brotist var inn í hænsna- og kalkúnabúið á Reykjum í Mosfellsbæ í byrjun júní og á svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí. Dýrum var hleypt út og skemmdarverk unnin á búunum.Birna Guðrún Einarsdóttir lögreglufulltrúi segir lögreglu enn afla gagna og rannsaka hverjir kunni að hafa verið að verki. Bæði sé til rannsóknar hvort einn hafi verið að verki eða hópur fólks. Fleiri en einn einstaklingur liggi undir grun en enginn hefur verið boðaður í skýrslutöku enn sem komið er.Rannsókn er í forgangi hjá lögreglu. Málin eru rannsökuð sem brot á lögum um dýravelferð, innbrot og eignaspjöll. Innbrotin leiddu til þess að einhver dýr drápust og önnur þur