Inflúensutilfellum fjölgaði verulega á seinasta ári og greindust alls 1.382 einstaklingar á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri samanborið við 835 á árinu á undan. Faraldurinn hófst tveimur til fjórum vikum fyrr en undanfarna vetur og fór hraðar af stað en undanfarin ár.