Mál Skagstrendingsins sem náði ekki í Neyðarlínuna á föstudaginn er enn til skoðunar, bæði hjá Neyðarlínu og Fjarskiptastofu. Málið er litið alvarlegum augum og ekki útilokað að það tengist útfösun á 2G og 3G sendum á landinu.Eldri símar eru þannig gerðir að þegar hringt er í neyðarnúmer reynir síminn sjálfkrafa að gera það í gegnum gömlu 2G eða 3G kerfin, sem eru ekki lengur virk á Íslandi. Þetta þótti besta og öruggasta leiðin hjá símaframleiðendum fyrir nokkrum árum - áður en slökkt var á sendunum.„Ef að þau eru ekki til staðar, þá kemst símtalið ekki í gegn. Símtækið virkar að öðru leyti, til að afgreiða símtöl - hvort sem það er í Dominos eða önnur innlend eða erlend símanúmer,“ segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu og segir mikilvægt að átta sig á að símtæki geti vir