Bonnie Tyler vöknuð úr dái en þungt haldin

Velska söngkonan Bonnie Tyler er vöknuð úr dái en er enn þungt haldin á gjörgæslu á sjúkrahúsi í Faro í Portúgal. Tyler var haldið sofandi meðan hún jafnaði sig eftir bráðaaðgerð á þörmum í byrjun maí.Læknar segjast fullvissir um að hún nái sér en að batinn gangi hægt.Tyler stefndi á tónleikaferð í sumar í tilefni 50 ára afmælis lags hennar Lost in France. Tónleikum hefur ýmist verið frestað eða aflýst en vonir standa til þess að söngkonan jafni sig í tæka tíð fyrir tónleika sem eru áformaðir í haust.Tyler er 74 ára og skaust upp á stjörnuhimininn á níunda áratugnum við útgáfu smáskífunnar Total Eclipse of a Heart. Hún var heiðruð Grammy-verðlaunum fyrir útgáfu lagsins auk Faster Than the Speed of Light og Here She Comes.
Bonnie Tyler vöknuð úr dái en þungt haldin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd