Trump: „Sýrlendingar eiga að sjá um Hezbollah“

Donald Trump forseti Bandaríkjanna gagnrýnir Ísraelsmenn fyrir hvernig þeir taka á Hezbollah-samtökunum í Líbanon og leggur til að Sýrlendingar taki við því verkefni. Þá vísar hann því á bug að nýjum samningi fylgi fjárfestingar í Íran og segir mikilvægast að Íranar eignist aldrei kjarnorkuvopn.Trump tjáði sig um samninginn við Íran fyrir fund sinn með Sheikh Tamim bin Hamad al Thani emírnum í Katar sem er meðal gesta á G7 fundinum í Frakklandi. Þar sagði hann þann fréttaflutning fáránlegan að samningurinn myndi skuldbinda Bandaríkjamenn til að fjárfesta í Íran. „Við erum ekki að setja neina peninga þangað og erum ekki skyldugir til þess. Við megum það ef við viljum en við erum ekki að fjárfesta þar,“ sagði hann.Íranskir fjölmiðlar höfðu greint frá því að í klásúlu í samningnum kæmi fram a
Trump: „Sýrlendingar eiga að sjá um Hezbollah“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd