Áfrýjunardómstóll í Svíþjóð mildaði í dag dóm yfir sænsku „sorpdrottningunni“ Faribu Andersson, úr sex árum í fimm ár. Hún var eftir sem áður dæmd fyrir stórfelld umhverfisspjöll meðan hún rak sorpfyrirtæki sitt Think Pink.Tíu manns voru í héraði dæmdir fyrir sinn þátt í málinu en áfrýjunardómstóllinn sýknaði tvo þeirra og mildaði refsinguna hjá þremur þeirra, þar á meðal Andersson. Að mati dómstólsins voru það fjórar manneskjur sem gegndu lykilhlutverki innan fyrirtækisins í að fremja gróf umhverfisbrot á 18 mismunandi stöðum í landinu. Alls voru um 200 þúsund tonn af sorpi meðhöndluð á rangan hátt.Think Pink gekk í fyrstu afar vel undir stjórn Andersson og hún var meðal annars valin einn áhugaverðasti frumkvöðull Svíþjóðar í tímaritinu Dagens Industri árið 2018. Fallið var hratt eftir að