Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur vísað til héraðssaksóknara kvörtun manns sem var handtekinn af sérsveit lögreglu á Ráðshústorginu á Akureyri að kvöldi þjóðhátíðardagsins 2023.Maðurinn leitaði til nefndarinnar og taldi sig hafa verið beittan óþarfa hörku. Hann hafi verið „rifinn niður í jörðina þrátt fyrir að hafa ekki gerst brotlegur við lög“. Sérsveitarmaður hafi svo lagst af fullum þunga með hné í háls.Málavextir eru raktir í ákvörðun nefndarinnar.Samkvæmt gögnum frá lögreglu barst tilkynning um slagsmál fyrir utan skemmtistað við Ráðhústorgið á Akureyri. Manninum, sem kvartaði til nefndarinnar, og bróður hans hefði lent saman og voru þeir báðir handteknir. Sérsveit ríkislögreglustjóra var á vettvangi og aðstoðaði lögreglu við handtökuna.Í bréfi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra