Stórsókn í menntamálum ekkert annað en niðurskurður

Formaður Félags framhaldsskólakennara lýsir þungum áhyggjum af niðurskurði til framhaldsskólastigsins. Hann segir óraunhæft að halda uppi metnaðarfullu skólastarfi þegar meirihluti opinberra framhaldsskóla eru reknir með halla og sjá fram á enn frekari niðurskurð næstu fjögur árin.„Það verður sífellt erfiðara að svara því hvernig við eigum að halda uppi metnaðarfullu skólastarfi þegar allt er skorið niður við trog endalaust,“ sagði Guðjón Hreinn Hauksson í Morgunútvarpinu á Rás 2.Samkvæmt nýsamþykktri fjármálaáætlun á að skera niður til allra skólastiga og stjórnsýslu mennta- og barnamála næstu fjögur ár. Niðurskurður til framhaldsskóla nemur nærri 8% til ársins 2031.„Þetta er eina skólastigið sem er jafnt og þétt skorið niður. Heildarframlög til á mann, til fræðslumála, hafa aukist í raun
Stórsókn í menntamálum ekkert annað en niðurskurður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd