Tveir í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar

Tveir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum á alvarlegri líkamsárás í Reykjanesbæ aðfaranótt mánudags. Einn var fluttur á sjúkrahús með stungusár eftir áflog. Upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir en hann var ekki talinn í lífshættu.Þrír voru handteknir og fór lögregla fram á að tveir þeirra yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Fallist var á það og var þeim þriðja sleppt, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.Að sögn lögreglu eru brýnir rannsóknarhagsmunir fyrir hendi og er rannsóknin á frumstigi.Til áfloganna kom við úrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og sagði yfirlögregluþjónn í rannsóknardeild á mánudag að tildrög þeirra virtust vera ágreiningur milli íbúa. Einn hafi verið stunginn og annar særst á hendi.Sérsveit rík
Tveir í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd