Inga snúin aftur úr veikindaleyfi: „Nú er skvísan á leiðinni á ríkisstjórnarfund“

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, er snúin aftur úr 18 daga veikindaleyfi.Inga tilkynnti endurkomu sína í beinu streymi á Facebook-reikningi sínum í dag, þar sem hún var á leiðinni á ríkisstjórnarfund. Þar kvaðst ráðherrann hafa glímt við skæða flensu.„Nú er skvísan á leiðinni á ríkisstjórnarfund. Ég er búin að ná mér eftir þessa leiðindaflensu sem ég er búin að vera að glíma við eins og svo margir landsmenn,“ segir Inga og bendir á að kjörnir fulltrúar hljóti engar undantekningar þegar komi að veikindum.„Við erum ekki róbottar.“Eftir ríkisstjórnarfund séu atkvæðagreiðslur á þinginu fram undan og kvaðst Inga spennt að snúa aftur til starfa.
Inga snúin aftur úr veikindaleyfi: „Nú er skvísan á leiðinni á ríkisstjórnarfund“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd