Zelensky mættur á G7 fundinn – reynt að fá Bandaríkin til að þrýsta á Rússa

Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu kom til Évian-les-Bains í Frakklandi í morgun til að sitja fyrsta formlega fund dagsins á leiðtogafundi G7-ríkjanna sem hófst í gær. Umræðuefnið er hvernig eigi að byggja upp frið og öryggi í Úkraínu.Zelensky vill að ríkin auki þrýsting á Rússa að hætta stríðsrekstri sínum í Úkraínu. Til þess hefur hann stuðning fulltrúa Evrópu í þessum hópi - Frakklands, Þýskalands, Ítalíu, Bretlands og Evrópusambandsins sem hefur áheyrn á fundinum, sem og stuðning Japans og Kanada. Ekki er eins skýrt hvar Bandaríkin standa.Zelensky skoraði í gær á G7-ríkin að bregðast ákveðið og af festu við síðustu árásum Rússa. Þar voru 11 drepnir og yfir þúsund ára gamalt klaustur á heimsminjaskrá sprengt. Hann sagðist jafnframt hafa lagt til að hann og Vladimír Pútín forseti Rússlan
Zelensky mættur á G7 fundinn – reynt að fá Bandaríkin til að þrýsta á Rússa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd