Rússar kanna viðbragð sænska hersins

Sænski flugherinn sendi Gripen-orrustuþotur til móts við rússnesku þoturnar.EPA / MARTIN DIVISEKTvær rússneskar orrustuþotur sem flugu í átt að Svíþjóð á föstudag sneru við aðeins nokkur hundruð metrum áður en þær flugu inn í sænska lofthelgi.Sænski herinn birti í dag nýjar upplýsingar um aðgerðir sínar á föstudag en orrustuþotur flughersins voru sendar til móts við rússnesku þoturnar.Önnur þotan sneri við austur Landsort í sænska skerjafirðinum en hin í grennd Hanö-flóa í Suður-Svíþjóð.Ewa Skoog Haslum, aðgerðastjóri í sænska hernum, segir í samtali við sænska ríkisútvarpið að með flugi orrustuþotanna hafi Rússar ef til vill verið að kanna viðbragð Svía. Hún segir herinn líta flug rússnesku þotanna alvarlega.
Rússar kanna viðbragð sænska hersins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd