Íslenska ríkið hefur ákveðið á áfrýja áfellisdómi sem féll í héraðsdómi Reykjavíkur í plastbarkamálinu.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Íslenska ríkið var dæmt bótaskylt vegna stórfellds gáleysis Tómasar, sem að mati héraðsdóms leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til tjóns og andláts Andemariams, tæpum þremur árum eftir að plastbarkinn var græddur í hann.