Um helgina voru birtar niðurstöður könnunar Maskínu sem unnin var fyrir DV vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Þar kom fram að 44,5 prósent landsmanna ætla að segja já í ágúst, 39,4 prósent nei og 14,6 prósent eru óákveðin. Um eitt og hálft prósent vildi ekki svara. Það sem vakti einna helst athygli í niðurstöðum könnunarinnar var afstaða stuðningsfólks vinstri flokkanna sem vilja að Ísland standi utan Evrópusambandsins, VG og Sósíalista, en 83,3 prósent kjósenda VG ætla að segja já og 71,6 prósent Sósíalistaflokksins. Sjónum var beint að vinstri flokkunum og Evrópusambandinu í fréttaskýringaþættinum Þetta helst.Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir athyglisvert að meirihluti kjósenda VG og Sósíalistaflokksins sé hlynntur því að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að