Fluttur á sjúkrahús eftir vinnuslys í Hafnarfirði

Maður á fimmtugsaldri var fluttur á sjúkrahús eftir vinnuslys á Koparhellu í Hafnarfirði í gær. Hann missti meðvitund um stund en sat uppréttur og gat talað þegar lögreglumenn komu á staðinn, segir Skúli Jónsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Skúli segir manninn hafa fallið tvo metra úr vinnuvél með höfuðið á undan. Hann hafi verið með áverka á andliti eftir fallið. Upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir.
Fluttur á sjúkrahús eftir vinnuslys í Hafnarfirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd