Nefnd um eftirlit með lögreglu telur lögreglu hafa farið fram úr meðalhófi þegar einstaklingur úlnliðsbrotnaði við handtöku á Akureyri síðasta sumar. Málið er á borði héraðssaksóknara.Þetta kemur fram í ákvörðun nefndarinnar sem kom saman 29. maí. Þar segir að í ágúst 2025 hafi kvartandi mætt á ökutæki sínu til að heimsækja vin sinn á Akureyri. Þangað hafi lögregla og síðar sérsveit komið.Lögreglan lýsir því þannig í úrskurðinum að lögreglumaður hafi gengið rólega að kvartanda og spurt hvort ekki væru allt með felldu. Hann hafi þá svarað hvasst: „Jú, þangað til þú komst.“Þegar kvartandi ætlaði að opna dyr á stigagangi íbúðahúsnæðis með lykli segir hann sérsveitarmann hafa ætlað að handtaka sig.Kvartandi mótmælti því og spurði um ástæður handtökunnar en sagðist ekki hafa fengið svör frá lög