Milt veður einkennir landið í dag. Það gengur í austan- og norðaaustanátt, 5-13 metrar á sekúndu, bjart með köflum, en stöku síðdegisskúrir suðvestanlands.Hiti verður á bilinu 8 til 18 stig, hlýjast á Norður- og Vesturlandi. Í kvöld bætir í vind syðst á landinu. VIÐRAR VEL TIL HÁTÍÐAHALDA Í HÖFUÐBORGINNI Á morgun, þjóðhátíðardaginn, er spáð stífri norðaustanátt með rigningu og svölu veðri um landið austanvert. Vestanlands ætti hins vegar að verða þurrt að mestu og sæmilega milt. Á höfuðborgarsvæðinu viðrar líklega vel til hátíðarhalda því þar er ólíklegt að vindur nái sér á strik, segir í hugleiðingum veðurfræðings.Hiti verður á bilinu 6 til 15 stig, mildast suðvestantil.