Milla Ósk Magnúsdóttir framleiðandi hjá ACT4 hyggst bjóða sig fram til formanns Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda. Hún segir aldrei hafa verið mikilvægara en nú fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað að eiga öflugan talsmann sem geti átt í góðu samtali við stjórnvöld. Hún segist ekki munu hika við að rífa kjaft ef þess mun þurfa, þó það sé ekki fyrsti kostur.