33 ára karlmaður spyr: „Góðan daginn. Er með námslán og eftirstöðvar á því eru nú um 814.000 kr. Afborganir af því eru rúmar 29.000 á mánuði. Ég get borgað inn á það aukalega hátt upp í 200.000 á mánuði og gengið frá láninu innan árs. Hversu skynsamt er fyrir mig að reyna að borga það upp sem fyrst og geta nýtt þessa upphæð inn á húsnæðislánið mitt eða halda áfram að borga af því og reyna frekar að greiða aukalega inn á húsnæðislánið? Þetta eru einu tvö lánin sem ég er með. Er einnig með smá upphæð í fjárfestingar.“