Kjaraviðræður flugmanna og Icelandair halda áfram í dag

Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar í kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair klukkan tíu árdegis.Ein af flugvélum Icelandair. Áfram verður fundað í kjaradeilu flugmanna og félagsins í dag.RÚV / Kristófer Óli BirkissonÁstráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði fréttastofu RÚV í gær að deilan væri hvort tveggja þung og erfið. Margar tillögur til lausnar hefðu verið lagðar fram en viðræðurnar mjakist mjög hægt áfram. Ástráður vildi aðspurður hvorki greina efnislega frá innihaldi tillagnanna né tjá sig um hvort aflýsingar flugferða Icelandair héldust í hendur við gang viðræðna.
Kjaraviðræður flugmanna og Icelandair halda áfram í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd