Íranir í útlegð mótmæltu klerkastjórninni áður en fyrsti leikur landsliðsins á heimsmeistaramóti karla í fótbolta hófst í Los Angeles í Bandaríkjunum. Andstæðingurinn var Nýja Sjáland.Einn mótmælenda ber derhúfu á höfði með kunnuglegu slagorði.EPA / TED SOQUIMótmælendur báru skilti, veifuðu fánum og sögðu liðið ekki vera fulltrúa írönsku þjóðarinnar. Mótmælin voru þó friðsamleg að sögn erlendra fréttaveitna. Nokkur óvissa var um þátttöku Írana í mótinu vegna stríðsins við gestgjafana Bandaríkjamenn. Ellefu úr starfshópi liðsins var til að mynda meinað um vegabréfsáritun. Leiknum lyktaði með jafntefli, 2 - 2.