Á þriðja þúsund drepin í átökum það sem af er ári — aðalframkvæmdastjóri SÞ væntanlegur til Port-au-Prince

Yfir 2.300 hafa verið drepin í átökum glæpagengja á Haítí það sem af er þessu ári að sögn Volkers Türk, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna.Antonio Guterres er væntanlegur til Haítí í dag.EPA / Ana NascimentoNTB-fréttaveitan greinir frá og segir að yfir þúsund til viðbótar hafi særst og næstum hundrað verið rænt. Vopnuð og illskeytt glæpagengi hafa haldið landinu í heljargreipum árum saman og ástandið hefur sífellt farið versnandi.Máttlitlar tilraunir hafa verið gerðar af hálfu Sameinuðu þjóðanna til að mynda alþjóðalegar sveitir til liðsinnis hers og lögreglu á Haítí. Aðalframkvæmdastjórinn Antonio Guterres vill reyna það til þrautar og er sjálfur væntanlegur til Haítí í dag.
Á þriðja þúsund drepin í átökum það sem af er ári — aðalframkvæmdastjóri SÞ væntanlegur til Port-au-Prince

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd