Lúkasjenkó biður Zelensky afsökunar og segist ekki ætla að beina spjótum hersins að Úkraínu

Alexander Lúkasjenkó, leiðtogi Belarús, segir enga hernaðarógn stafa frá landinu í garð Úkraínumanna.Alexander Lúkasjenkó forseti Belarús.Belta / EPA-EFE„Úkraína þarf ekki að óttast hernaðaraðgerðir af hálfu Belarús og enn síður af minni hálfu,“ sagði Lúkasjenkó í viðtali á sjónvarpsstöðinni Al Arabiya.Hann viðurkenndi að með þessari yfirlýsingu vildi hann bregðast við yfirlýsingum Úkraínuhers um að hann hefði um fimm hundruð skotmörk í Belarús í sigtinu. Lúkasjenkó bað jafnframt Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta afsökunar á öllum harðneskjulegum orðum sem hann hefði látið falla í hans garð.
Lúkasjenkó biður Zelensky afsökunar og segist ekki ætla að beina spjótum hersins að Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd