Evrópusambandið boðar að nýjar reglur varðandi réttindi flugfarþega séu í farvatninu. Helsta breytingin er að handfarangurstaska skuli alltaf vera innifalin í miðaverði ásamt lítilli tösku og farþegar geti farið fram á afslátt þarfnist þeir stærri töskunnar ekki.Þannig verða stór lággjaldaflugfélög á borð við Ryanair og Easy-Jet að hætta innheimtu sérstaks gjalds fyrir handfarangur. Bætur fyrir niðurfellingu eða tafir á flugi yfir þrjár klukkustundir verða áfram þær sömu, milli 250 og 600 evrur á farþega eftir lengd ferðar.Tilgangurinn er að auka gegnsæi og auðvelda samanburð á flugmiðaverði. Hagsmunasamtök flugfélaga í Evrópu, Airlines for Europe, vara við að nýju reglurnar leiði af sér hækkun á grunnverði flugferða auk þess sem þau árétta að félögunum sé iðulega refsað fyrir afleiðingar