Rússneskur listamaður og skopmyndateiknari sem hefur gagnrýnt Vladimír Pútín Rússlandsforseta harðlega var í gær skotinn til bana í Póllandi.Hinn myrti er sagður harður andstæðingur Vladimírs Pútín.AP/Pool Sputnik Kremlin / Vyacheslav ProkofyevLögregla telur að manninum hafi verið brugguð launráð og hann myrtur að því er pólska fréttaveitan PAP greinir frá. Fréttaveitan NTB segir ódæðismanninn enn á flótta og ófundinn.Yfirvöld í Póllandi hafa ekki enn nafngreint hinn myrta en óháðir rússneskir miðlar segja hann vera hálffimmtugan skopmyndateiknara sem hefur hafst við í útlegð í Póllandi frá árinu 2021 og er þekktur fyrir að gera mjög hæðnisfullar teikningar af Pútín.