Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra ræddi samgönguáætlun í Kastljósi kvöldsins. Hann sagði unnið að stofnun innviðafélags sem myndi halda utan um stórar framkvæmdir á borð við Fljótagöng og mögulega Sundabraut, en stefnt er að því að hefja framkvæmdir við Sundabraut á næsta ári.Einnig var rætt um stöðu Herjólfs og ákvörðunina um að senda Baldur til Vestmannaeyja á meðan viðgerð stendur yfir. „Ég skil mjög þessar áhyggjur fyrir vestan og þetta er mjög erfið ákvörðun en við verðum að horfa til þess að Vestmannaeyjar eru eyja og það verður að tryggja samgöngur þar,“ sagði Eyjólfur.Viðgerð á Herjólfi hefur tafist vegna skorts á koparvír í vélina og gert er ráð fyrir að hún standi fram í júlí. Ráðherrann sagði alvarlegt að ferjan hafi verið frá svo lengi og að slíkt megi ekki endurtaka sig.