Tilboð Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hefur verið valið hagstæðast í útboði Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna (FSRE). Hjúkrunarheimilið mun rísa við Þursaholt 6 og verða um 9.100 fermetrar að stærð með rými fyrir 140 íbúa.Alls bárust tíu tilboð frá fimm bjóðendum í verkefnið og var tilboð Reita metið hagstæðast samkvæmt þeim viðmiðum sem voru sett fram í útboðsgögnum. Leigutilboð félagsins nemur 5.800 krónum á fermetra, sem samsvarar um 633 milljónum króna á ári. Áætlaður framkvæmdakostnaður er um 8,9 milljarðar króna. „ÖLDRUN ÞJÓÐAR KALLAR Á STÓRTÆKA AUKNINGU“ Að framkvæmdum loknum tekur við 25 ára verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna. Reitir munu annast rekstur húsnæðisins en rekstur hjúkrunarheimilisins sjálfs verður í höndum annars aðila á vegum