Vöktun efld og myndavélum komið fyrir í Klaustrinu í Garðabæ

Vöktun verður efld og myndavélum komið fyrir til að fylgjast með mannaferðum í Klaustrið í Garðabæ. Slysahætta er í húsinu, sem hefur staðið autt í um fimm ár, og á annað tug tilkynninga hafa borist um húsbrot þar á þessu ári.Fyrrum nunnuklaustur Sankti-Jósefssystra hefur staðið autt í árabil. Líkt og greint var frá í fréttum í gær hafa ungmenni og ógæfufólk vanið komur sínar þangað.Á annað tug tilkynninga hafa borist um húsbrot í Klaustrið í Garðabæ á þessu ári. Slökkvilið hyggst taka út öryggi þess á næstu dögum. FLESTAR TILKYNNINGAR FRÁ ÁHYGGJUFULLUM NÁGRÖNNUM Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Hafnarfirði, segir flestar tilkynningar um að verið sé að fara inn í húsið koma frá áhyggjufullum nágrönnum.„Fyrst voru þetta rúðubrot og svo hefur fólk verið farið þarna inn, hurðir b
Vöktun efld og myndavélum komið fyrir í Klaustrinu í Garðabæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd