Alvotech hefur ákveðið að efna til sölutryggðs hlutafjárútboðs í Bandaríkjunum samhliða því að áforma að bjóða tilteknum fagfjárfestum á EES-svæðinu að kaupa bréf á sama gengi, en félagið væntir þess að söluandvirði hlutabréfanna muni samtals nema um 125 milljónum Bandaríkjadala. Hlutabréfaverð Alvotech hefur fallið skarpt á eftirmarkaði vestanhafs en hlutafjáraukningin kemur í kjölfar þess að sjóðstaða félagsins hafði þrengst nokkuð á fyrstu mánuðum ársins.