Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra telur Ísland ekki eiga erindi í Evrópusambandið en segir að Flokkur fólksins muni vinna af heilum hug að því að fá besta samning mögulegan ef þjóðin velur að hefja á ný aðildarviðræður í þjóðaratkvæðagreiðslunni í haust.„Ég tel óþarfi að vera að sækja um í samtök sem ég tel að við eigum ekki heima í,“ sagði Eyjólfur í Kastljósi. „Ég er mjög mikill stuðningsmaður EES-samningsins, okkur hefur gengið vel innan EES. Ég tel að það sé samningur sem við eigum að halda í og gæta hagsmuna okkar í.“Eyjólfur kaus með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Alþingi og segir mikilvægt að þjóðin fái að taka þessa ákvörðun. „MIKILVÆGT AÐ ÞETTA SNÚIST EKKI UM RÍKISSTJÓRNARSAMSTARFIГ Þrátt fyrir afstöðu hans og Flokks fólksins um hvort Ísland eigi erindi í ESB segir Eyjólfur að f