Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað eftir að Bandaríkjamenn og klerkastjórnin í Íran náðu saman um frið og opnun Hormússunds. Til stendur að undirrita samkomulagið formlega í Sviss á föstudag og hafa bæði stjórnvöld í Íran og Bandaríkjunum lýst því sem miklum sigri. Kjarasamningar eru áfram í hættu en hagfræðingur segist nú sjá vonarglætu.