Rúnar Jósefsson, íbúi á Skagaströnd, reyndi fimm sinnum að hringja í Neyðarlínuna á föstudagsmorgun þegar bróðir hans var hætt kominn vegna sýkingar í heila en alltaf hringdi út. Í millitíðinni náði hann sambandi í gegnum síma við bróðurdóttur sína sem býr í Fossvogi í Reykjavík, sem og Heilbrigðisstofnun Norðurlands, svo ljóst er að samband var á síma hans.Bróðurdóttir hans reyndi einnig tvívegis að hringja í 112 en fékk ekki svar. Hún náði sambandi í þriðju tilraun. Neyðarlínan vildi þá ekki senda sjúkrabíl af stað, án þess að ræða við einhvern á staðnum.Rúnar hringdi að lokum í Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi, sem vildi heldur ekki senda sjúkrabílinn nema boðin kæmu frá Neyðarlínunni. Loks tókst Rúnari að fá bíl sendan á staðinn og hann keyrði á móti og mætti bílnum á miðri l