Reyna í þriðja sinn að fá hoppukastalamáli vísað frá dómi

Verjendur fimm sakborninga sem ákærðir voru fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi eftir slys í hoppukastala á Akureyri fyrir fimm árum fóru í dag fram á frávísun málsins. Það er í þriðja sinn sem látið er reyna á það.Fyrsta dag júlímánaðar 2021 barst útkall til viðbragðsaðila á Akureyri. Hoppukastalinn Skrímslið, sem var nær tívolítæki að stærð, hafði fokið upp að hluta í vindhviðu. Það varð til þess að börnin sem í honum voru köstuðust til, sum skullu utan í hvert annað en önnur lentu á gangstétt utan hans. Sjö fóru á slysadeild og fjögur börn slösuðust alvarlega.Í upphafi árs 2023 var loks gefin út ákæra. Fimm menn voru sagðir ábyrgir fyrir því sem gerst hafði; tveir á vegum handknattleiksdeildar KA, framkvæmdastjóri Ævintýralands-Perlunnar sem átti kastalann auk tveggja manna sem komu að upp
Reyna í þriðja sinn að fá hoppukastalamáli vísað frá dómi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd