Eldri maður ók á níu ára stúlku á reiðhjóli í Hafnarfirði í morgun og yfirgaf vettvang. Lögreglan hefur til skoðunar hvort maðurinn verði kærður fyrir að stöðva ekki bílinn og grípa til viðeigandi ráðstafana.Stúlkan og vinkona hennar voru að hjóla yfir götu í Hamrabergi í Hafnarfirði þegar ekið var á hana. Þær voru á gangbraut þar sem Hamraberg og Reykjanesbraut mætast.„Þetta fór betur en á horfðist,“ segir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Stúlkan hafi verið með hjálm en fundið til eymsla í mjöðm eftir áreksturinn.Sjúkrabíll var kallaður út en enginn var fluttur á sjúkrahús, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.Sjónarvottur skráði hjá sér bílnúmer á bíl mannsins sem ók á stúlkuna og tókst lögreglu fljótlega að hafa uppi á ho