Tveir úr áhöfn skipsins Fitburg, sem Finnar stöðvuðu á gamlársdag vegna gruns um skemmdarverk á sæstrengjum, hafa verið ákærðir. Skipstjórinn, sem er annar hinna ákærðu, er rússneskur. Hinn er frá Aserbaísjan.Meint skemmdarverk voru framin sama dag. Skipið var á leið frá Rússlandi til Ísraels þegar finnska strandgæslan stöðvaði það. Þá höfðu tveir strengir í Finnska flóa skemmst. Þetta er eitt af mörgum ætluðum skemmdarverkum á sæstrengjum í Eystrasalti sem grunur leikur á að séu hluti af fjölþáttaárásum Rússa gegn Vesturlöndum. Skipið er talið hluti af rússneska skuggaflotanum, sem tekur þátt í slíkum árásum. DRÓGU AKKERI 130 KÍLÓMETRA Mennirnir eru að sögn saksóknara ákærðir fyrir að hafa notað akkeri skipsins til að skemma strengina tvo og jafnframt reynt að skemma átta strengi í við