Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að stofnaður verði starfshópur til að meta áhrif aðildar að Evrópusambandinu á hagsmuni Reykjavíkurborgar. Í tillögu þeirra segir að gera skuli ráð fyrir að starfshópurinn skili stuttri og hnitmiðaðri samantekt eigi síðar en 14. ágúst, tæpum tveimur vikum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.Tillagan verður tekin fyrir á fundi borgarstjórnar á morgun, 16. júní.Í henni segir að opinber umræða um mögulega aðild að Evrópusambandinu hafi sögulega einblínt á áhrif á atvinnuvegi á borð við sjávarútveg og landbúnað. Þar af leiðandi skorti hlutlæg gögn og heildstæða samantekt á áhrifum aðildar og upptöku evru á efnahag og fjárfestingargetu stærstu sveitarfélaga landsins.Starfshópnum yrði gefið það hlutv