Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í dag eftir að ekið var á barn í umdæmi lögreglustöðvar 2, sem þjónustar Breiðholt í Reykjavík og Kópavog. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Þar segir að ökumaðurinn hafi yfirgefið vettvang eftir að hafa ekið á barnið. Lögreglan hafi stöðvað hann við akstur skömmu síðar.Upplýsingar um líðan barnsins liggja ekki fyrir.Fréttin verður uppfærð.