Bandaríkjaforseti segir að skipaumferð hefjist að nýju um Hormússund í dag. Gögn frá greiningarfyrirtækjum benda þó til þess að umferð um sundið sé enn mjög takmörkuð.„Skip eru farin að sigla úr Hormússundi, mörg þeirra hlaðin olíu. Þau sigla eftir suðurleiðinni sem er örugg, trygg og óspillt,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í dag.Í gær bárust fregnir af því að samkomulag hafi náðst um áframhaldandi vopnahlé í átökunum í Mið-Austurlöndum. Bandarísk og írönsk stjórnvöld stefna á að undirrita samkomulag um áframhaldandi vopnahlé í Sviss á föstudag, þegar fundi G7-ríkjanna lýkur. Því er ætlað að binda enda á átök á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon.Þvert á yfirlýsingar Bandaríkjaforseta benda gögn þó til þess að umferð um Hormússund sé enn