Maður var í dag, 15. júní, sakfelldur í Héraðsdómi Vesturlands fyrir hótanir. Ákært var vegna atviks sem átti sér stað á nýársdag árið 2025 en þá sendi maðurinn konu einni eftirfarandi SMS-skilaboð: „Þá drep ég þig og þennan hund.“ Ákærði mætti ekki við réttarhöldin og var því kveðinn upp dómur yfir honum að honum fjarstöddum. Lesa meira