Stjórn Félagsbústaða hf. hefur ráðið Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur í starf framkvæmdastjóra félagsins. Ákvörðun stjórnar er byggð á undangengnu mati ráðgefandi hæfnisnefndar. Niðurstaða hæfninefndarinnar var að Þórdís Lóa Þórhallsdóttir væri með afgerandi hætti talin uppfylla best þær hæfnikröfur sem settar voru fram í auglýsingu um starfið.