Rússneska njósnaskipið Yuri Ivanov er ekki lengur í efnahagslögsögunni. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, talsmaður Landshelgisgæslunnar. Ekki liggur fyrir hvort skipið hafi fært sig út fyrir lögsöguna en haldi sig sem fyrr á milli Íslands og Grænlands, eða hvort það hefur haldið til heimahafnar.Landhelgisgæsla Íslands