Grímseyingar eru mjög ósáttir við fækkun ferða ferjunnar Sæfara til og frá eyjunni. Formaður hverfisráðs Grímseyjar segir að uppbygging sé ómöguleg haldi ferðum áfram að fækka.Í upphafi árs bjuggu 58 í Grímsey. Siglingin á milli Grímseyjar og Dalvíkur tekur þrjár klukkustundir. Nýverið var ákveðið að fækka ferðum yfir vetrartímann, úr fjórum í þrjár, með því að fella niður siglingar á fimmtudögum.Halla Ingólfsdóttir, formaður Hverfisráðs Grímseyjar og framkvæmdastjóri Arctic Trip, sagði á Morgunvaktinni á Rás 1 að þetta væru afdrifaríkar breytingar fyrir samfélagið og ferðaþjónustuna.„Þegar ég kem hérna fyrst fyrir tæpum 30 árum voru tvær ferðir á viku – erum við virkilega að fara aftur í fornöld? Og líka það að þetta er það eina sem við erum að biðja um að samgöngurnar virki því að svo lí