Neyðarlínan, Fjarskiptastofa og fjarskiptafyrirtæki hafa til skoðunar símtöl frá manni á Skagaströnd sem náði ekki sambandi við Neyðarlínuna í gær, þrátt fyrir að hafa hringt ítrekað. Landsmenn eru hvattir til að hringja í númerið 1280 og kanna hvort símar ná sambandi.Þetta eru skilaboðin sem þú vilt heyra þegar hringt er í 1280:„Prófun, neyðarsímtal. Símtalið þitt komst til skila.“Með því er hægt að kanna hvort samband næst við Neyðarlínuna án þess að valda óþarfa álagi - það á ekki að hringja beint í 112 til að kanna sambandið.Ef þú heyrir ekki skilaboð um að símtalið hafi komist til skila þá er áríðandi að síminn sé uppfærður eða honum skipt út.Síðan slökkt var á 2G og 3G sendum hafa Fjarskiptastofu borist margar tilkynningar um að ekki náist símasamband þar sem það náðist áður.Jón Svan