Meirihluti Alþingis samþykkti fjármálaáætlun til ársins 2031. Samkvæmt henni á að reka ríkissjóð með afgangi á næsta ári, í fyrsta skipti síðan 2018. Stjórnarandstaðan segir útilokað að það markmið standist.31 þingmaður meirihlutans greiddi atkvæði með tillögunni en 20 þingmenn stjórnarandstöðu voru á rauða takkanum.Fjölmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku til máls um atkvæðagreiðsluna og voru sammála um að áætlunin væri ótæk. Síðan hún hafi verið lögð fram sé spáð minni hagvexti og meira atvinnuleysi. Því blasi við að forsendur að baki áætluninni séu brostnar.Um það er ekki deilt í nefndaráliti meirihlutans. Þvert á móti er viðurkennt að forsendur séu breyttar en ekki voru gerðar tillögur um breytingar þar sem ekki liggur fyrir heildstætt mat á öllum þeim breytingum sem orðið hafa. H