Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efnislegrar meðferðar. Samkeppniseftirlitið vekur athygli á úrskurðinum í fréttatilkynningu.Málið höfðaði Samkeppniseftirlitið í þeim tilgangi að fá stjórnvaldssekt Samskipa, sem áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafði lækkað úr 4,2 milljörðum í 2,4 milljarða króna, færða í fyrra horf.Samkeppniseftirlitið taldi þá sekt sem áfrýjunarnefndin hafði kveðið á um ekki vera í samræmi við alvarleg og langvarandi brot Samskipa. RÍKIR ALMANNAHAGSMUNIR Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði málinu frá dómi vegna annmarka og sagði stefnu Samkeppniseftirlitsins hafa falið í sér óhóflegan skriflegan málflutning.Lengd stefnunnar hafi gert Samskipum nær ómög