Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Íran segjast stefna á að undirrita samkomulag um áframhaldandi vopnahlé í Sviss þegar fundi G7-ríkjanna lýkur í vikunni, binda á enda á átök á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon.Í gærkvöld greindu bandarísk og írönsk stjórnvöld frá því að samkomulag hefði náðst milli ríkjanna um áframhaldandi vopnahlé. Til stendur að undirrita það í Genf í Sviss á föstudag, að loknum undirbúningsfundum í Doha í Katar þar sem tæknileg úrlausnaratriði verða rædd.Í samkomulaginu, sem gildir í sextíu daga, felst að Íranar opna fyrir umferð um Hormússund, sem hefur að mestu verið lokað fyrir frá því í byrjun mars þegar Bandaríkjamenn hófu loftárásir á Íran. Þess í stað afléttir Bandaríkjaher herkví á sjó.Joseph Aoun, forseti Líbanons, vonar að samningur Bandaríkjanna og Írans