Bretar ætla að banna börnum innan 16 ára að vera á samfélagsmiðlum

Bresk stjórnvöld leggja til að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum yngri en 16 ára. Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands segir að miðlarnir auki á óhamingju barna, veiti þeim aðgang að skaðlegu efni og séu hannaðir til að gera þau háð miðlunum.Tillagan er afrakstur víðtæks samráðsferlis undir forystu stjórnvalda þar sem meðal annars voru gerðar tilraunir með bann og tímatakmörk á samfélagsmiðlum meðal hóps unglinga. Þar kom meðal annars í ljós að 83% foreldra töldu hættuna af samfélagsmiðlum vega þyngra en ávinninginn.Í tillögu stjórnvalda kemur fram að bannið nái yfir miðla eins og Snapchat, TikTok, YouTube, Instagram, Facebook og X, en ekki skilaboðaþjónustur á borð við WhatsApp og Signal. „Algjört bann er rétta leiðin. Ég er ekki tilbúinn að gera málamiðlanir þegar öryggi og velfer
Bretar ætla að banna börnum innan 16 ára að vera á samfélagsmiðlum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd