Dómi yfir Høiby líklega áfrýjað

Allar líkur eru á að verjendur Mariusar Borg Høiby áfrýi fjögurra ára fangelsisdómi yfir honum.Upplýsingar um efnisatriði dómsins hafa verið að birtast smátt og smátt. Áður var sagt frá því að Høiby hafi verið sakfelldur fyrir tvær nauðganir en sýknaður af tveimur öðrum sem hann var ákærður fyrir. Í þeim nauðgunum sem hann var sakfelldur fyrir voru konurnar sofandi og gátu ekki borið hönd yfir höfuð sér.Høiby var einnig sakfelldur fyrir ofbeldi í nánu sambandi gegn þáverandi kærustu sinni, Noru Haukland, og grófa líkamsárás og brot á nálgunarbanni gegn annarri konu. Hann var dæmdur til að greiða þessum konum samtals jafnvirði 8,4 milljóna íslenskra króna. Þá var hann einnig dæmdur fyrir vörslu fíkniefna, umferðarlagabrot og hótanir.Saksóknari hafði krafist fangelsis upp á sjö ár og sjö mán
Dómi yfir Høiby líklega áfrýjað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd