Einn hlaut stungusár og annar fékk sár á hendi eftir að til áfloga kom við Valhallarbraut í Reykjanesbæ á þriðja tímanum í nótt. Þrír voru handteknir og hyggst lögregla fara fram á gæsluvarðhald síðar í dag.Lögreglu var tilkynnt um slagsmál utandyra við Valhallarbraut um 20 mínútur í þrjú í nótt. Þar var fjöldi fólks saman kominn þegar lögreglu bar að. Einn maður var þá með stungusár og annar með sár á hendi.Sá sem var stunginn var fluttur á spítala. Hann er enn þar en er ekki í lífshættu.Til áfloganna kom við úrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Bjarney S. Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn í rannsóknardeild og almennri deild, segir að það virðist hafa komið til ágreinings milli íbúa. Einn var stunginn og ráðist var á annan sem særðist á hendi. Sérsveit ríkislögreglustjóra var köllu