Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Reglugerðin hefur gengið undir vinnuheitinu „símafrí/símafriður í grunnskólum“.Markmið reglugerðarinnar er að samræma reglur um notkun nemenda í grunnskóla á símum og snjalltækjum sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla. Reglugerðin á að skapa námsfrið, stuðla að vellíðan, auknum félagslegum tengslum og jákvæðum skólabrag, styðja við faglegt skólastarf og efla einbeitingu og frammistöðu nemenda. ENGIN SAMRÆMD REGLUGERÐ Í GILDI Engin samræmd reglugerð um notkun síma- og snjalltækja í grunnskólum er í lögum um grunnskóla í dag. Hver og einn skóli ákveður reglur um notkun þeirra á skólatíma. Sumir skólar hafa tekið upp á því að banna notkun þeirra á s